Stefnur sem lifandi stjórntæki
Stefnuvaki hjálpar sveitarfélögum að tengja stefnu og framkvæmd með skýru verklagi, sameiginlegri yfirsýn og reglubundinni faglegri leiðsögn.
Samþykkt stefna er ekki lokapunkturinn
Sveitarfélög leggja mikla vinnu í að móta stefnur og áætlanir. Þegar samþykkt stefna eða áætlun liggur fyrir tekur daglegt starf við. Þá getur yfirsýn veikst, ábyrgð orðið óljós og mikilvægar aðgerðir setið á hakanum.
Stefnuvaki hjálpar sveitarfélaginu að halda utan um heildina og tengja stefnur við ábyrgð, aðgerðalista, stöðumat og skýr næstu skref.
Hvernig styður Stefnuvaki sveitarfélagið?
Stefnuvaki setur upp sameiginlegt verklag og heldur því lifandi í reglulegu samstarfi við sveitarfélagið.
Handbók og gátlistar skapa sameiginlegt verklag og skýr viðmið.
Stefnuskrá sýnir hvaða stefnur og áætlanir eru í gildi, stöðu þeirra og tengsl.
Reglulegt stöðumat heldur ábyrgð, forgangsmálum og næstu skrefum sýnilegum.
Ráðgjöf og leiðsögn styður stjórnendur, nefndir og kjörna fulltrúa við að færa mál áfram.
Fyrstu afurðir verða áþreifanlegar
Fyrstu þrjá mánuðina er staðan greind, stefnur og áætlanir færðar í Stefnuskrá og tillögur að næstu skrefum mótaðar. Innan sex mánaða liggur fyrir Handbók sveitarfélagsins um stefnur og áætlanir ásamt samræmdu verklagi fyrir áframhaldandi vinnu.
Sveitarfélagið fær meðal annars
Stefnuskrá með yfirsýn yfir helstu stefnur og áætlanir.
Handbók og gátlista sem samræma vinnubrögð.
Skýrari ábyrgð, aðgerðalista og næstu skref.
Reglulegt stöðumat og faglegan ráðgjafa.
Verklag og afurðir sem verða eign sveitarfélagsins.
Um Stefnuvaka
Stefnuvaki byggir á reynslu af stefnumótun, stjórnsýslu og þróunarverkefnum sveitarfélaga.
Að baki Stefnuvaka stendur Þórður Freyr Sigurðsson, stefnumótunarsérfræðingur og viðskiptafræðingur með meistaragráðu í sjálfbærri byggðaþróun. Hann hefur þróað og leitt stefnumótunarferli, stýrt vinnustofum og unnið með kjörnum fulltrúum, stjórnendum og starfsfólki að því að móta markmið, samræma sjónarmið og færa hugmyndir í framkvæmd.
Persónuleg leiðsögn er mikilvægur hluti þjónustunnar. Þórður kemur inn á fundi, leiðir samtal og hjálpar hópum að sjá samhengi, taka ákvarðanir og móta raunhæf næstu skref.
Ávinningur
Sveitarfélagið fær betri yfirsýn yfir stefnur og áætlanir, samræmdari vinnubrögð og skýrari ábyrgð á næstu skrefum.
Með skýru verklagi og reglulegum stuðningi verður auðveldara að halda forgangsröðun á lofti, styrkja umboð stjórnenda og færa samþykkt stefnumál til framkvæmda.