Þórður Freyr Sigurðsson

Eigandi og ráðgjafi

Persónuleg leiðsögn færir málin áfram

Stefnuvaki byggir á faglegri aðferðafræði og nánu samstarfi við fólk. Stefnur og gögn skapa mikilvægan grunn en raunveruleg framvinda verður til þegar fólk nær sameiginlegum skilningi, tekur ákvarðanir og fylgir þeim eftir.

Mitt hlutverk er ekki að taka yfir ábyrgð sveitarfélagsins heldur að hjálpa stjórnendum, starfsfólki og kjörnum fulltrúum að sjá heildarmyndina, leiða samtalið og móta skýr næstu skref.

Bakgrunnur

Að baki Stefnuvaka stendur Þórður Freyr Sigurðsson, ráðgjafi með áralanga reynslu af stefnumótun, stjórnsýslu, greiningum og þróunarverkefnum.

Ég hef unnið með sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum og þróað og leitt stefnumótunarferli, vinnustofur, samráðsferli og samstarfsverkefni.

Í þeirri vinnu hef ég meðal annars stýrt umræðum með kjörnum fulltrúum, stjórnendum og starfsfólki og hjálpað hópum að samræma ólík sjónarmið. Ég legg sérstaka áherslu á að sjá hvernig markmið geta orðið að aðgerðum, þróunarverkefnum eða samstarfsverkefnum sem skapa raunverulegt virði.

Það sem einkennir mína nálgun

Ég legg áherslu á:

  • að skapa skýra yfirsýn áður en ákvarðanir eru teknar

  • að byggja upp traust samstarf sem styður stjórnendur og kjörna fulltrúa

  • að leiða markvisst samtal þegar sjónarmið og hagsmunir eru ólíkir

  • að tengja markmið við aðgerðir, ábyrgð og raunhæfa framkvæmd

  • að einfalda flókin viðfangsefni og skýra næstu skref

Ég lít á mig sem faglegan samstarfsaðila sem getur komið inn á fundi sveitarstjórnar, nefnda eða starfsmanna og hjálpað þátttakendum að komast að skýrri sameiginlegri niðurstöðu.

Af hverju Stefnuvaki?

Í gegnum árin hef ég ítrekað séð sömu áskorunina. Sveitarfélög leggja mikla vinnu í að móta metnaðarfullar stefnur og áætlanir en dagleg verkefni taka fljótt yfir. Yfirsýn veikist, ábyrgð verður óljós og samþykkt markmið komast ekki alltaf í framkvæmd.

Stefnuvaki varð til til að brúa þetta bil og tengja saman stefnumótun, ákvarðanatöku og framkvæmd.

Menntun og reynsla

  • Meistaragráða í sjálfbærri byggðaþróun frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi.

  • BSc-gráða í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.

  • Menntun og reynsla á sviði stefnumótunar, stjórnunar og ráðgjafar.

  • Höfundur leiðbeininga um gerð atvinnustefna fyrir sveitarfélög og svæði.

  • Reynsla af að þróa og leiða stefnumótunarferli, vinnustofur og samráðsferli.

  • Reynsla af sveitarstjórnar- og opinberri stjórnsýslu.

  • Reynsla af greiningum, þróunarverkefnum og samstarfi ólíkra hagsmunaaðila.

Tökum samtal

Hvert sveitarfélag hefur sína sögu, uppbyggingu og áskoranir. Fyrsta samtalið snýst um að skilja stöðuna og meta hvort reynsla mín og nálgun geti nýst sveitarfélaginu.